10/11/2023
Helix: Nýtt fyrirtæki kallar á nýja vefsíðu
Stafrænar lausnir Origo tóku að sér að setja upp nýjan vef fyrir Helix. Niðurstaða verkefnisins er vel upp sett og notendavæn vefsíða þar sem fagurfræði og einfaldleiki ræður ríkjum.
VIÐSKIPTAVINUR
OKKAR AÐKOMA
Bakendaforritun, framendaforritun, verkefnastýring
TÍMABIL
Hófst: september 2023
Í loftið: október 2023
SKOÐAÐU VERKEFNIÐ
https://www.helixhealth.is/
Heilbrigðislausnir Origo urðu nýlega að sjálfstæðu félagi og hafa fengið nafnið Helix. Við breytingu sem þessa er að mörgu að huga, þar á meðal þarf að setja upp nýjan vef fyrirtækisins. Stafrænar lausnir Origo tóku verkefnið að sér og unnu í samstarfi við hönnunarstofuna Metal, sem sá um útlit síðunnar.
Þörfin fyrir nýja vefsíðu
Heilbrigðislausnir fóru í djúpa mörkunar- og stefnumótunarvinnu og úr varð Helix, með algjörlega nýju útliti, nýjum tón og skýrari stefnu. Við sjálfstæðið frá Origo þurfti Helix sína eigin vefsíðu sem endurspeglaði þessa vinnu og sýndi meðal annars stefnu fyrirtækisins, vöruúrval og starfskúltúr. Stafrænar lausnir Origo voru fengin til þess að setja vefinn upp eftir hönnun Metals og mörkun sem Helix vann í samstarfi við Tvist.

Samstarfsverkefni
Metall hönnunarstofa sá til þess að útlit síðunnar væri fallegt, viðmótsþýtt og í takt við vörumerkið og Origo sá um tæknilega útfærslu og uppbyggingu síðunnar sjálfrar. Samvinnan var sérstakleg góð og úr varð heimasíða sem er bæði sjónrænt falleg, en fyrst og fremst mjög hagnýt. Stafrænar lausnir Origo og Metall hönnunarhús hafa unnið fjölmörg verkefni saman í gegn um tíðina, en þar má nefna vef Origo, ýmsar lausnir fyrir Stafrænt Ísland og nýjan vef Veðurstofunnar sem nú er í vinnslu.
Hröð afhending
Vefur Helix er unninn ofan á Orbit hönnunarkerfi Origo, sem er góður grunnur til þess að byggja vefi ofan á og nýtist fyrir alla almenna vefgerð . Tíminn sem fer í að smíða vef styttist umtalsvert þegar unnið er með Orbit og tók þetta verkefni einungis 6 vikur. Vefurinn nýtir Prismic vefkerfið og er hauslaus (e. Headeless) sem gerir hann mjög hraðan og skalanlegan.

Það var einstaklega þægilegt að vinna þetta verkefni með stafrænum lausnum Origo. Þjónustan er til fyrirmyndar, fagleg og hröð og viðmótið í Prismic er mjög notendavænt þegar uppfæra þarf innihald vefins eða setja upp nýjar síður.
Elfa Ólafsdóttir
•
Markaðsstjóri Helix
Einföld og hagnýt niðurstaða
Niðurstaða verkefnisins er vel upp sett og notendavæn vefsíða þar sem fagurfræði og einfaldleiki ræður ríkjum. Heimasíðan er stílhrein með einföldu litavali sem gerir það að verkum að auðvelt er halda uppi ímynd vörumerkisins.